-
Opalescence lýsingarefni - Yfirlit, hvað hentar þér?
Kynntu þér hér hvaða tannlýsingarefni eru í boði frá Ultradent.
Ultradent er leiðandi á markaðnum með tannlýsingu, þar sem tekið er tillit til áhrifa lýsingarefna á tannheilsu viðskiptavina. Opalescence efnin hafa öll PF formúlu og innihalda Potassium nitrate og fluor sem dregur úr viðkvæmni tannanna og ver þær gegn tannskemmdum. Einnig innihalda þau 20% vatn sem dregur úr þornun tannanna og kemur í veg fyrir viðkvæmni. Opalescence efnin eru úr seigfljótandi geli sem situr vel á tönnunum.
Opalescence Go lýsingarskinnur eru tilbúnar til notkunar. Tannlæknir ráðleggur um meðferð en þetta er fljótleg, ódýr en jafnframt fagleg leið til tannlýsingar.
Opalescence PF gel fæst í mismunandi styrkleikum til notkunar heima, með sérsmíðuðum lýsingarskinnum. Meðferð sem virkar vel og er hægkvæm þegar til lengri tíma er litið.
Opalescence Boost er fyrir markvissa kröftuga tannlýsingu sem fer fram í tannlæknastólnum. Boost getur verið gott start, t.d. áður en farið er í PF efni heima.
Opalescence Endo er notað í rótfylltar tennur.
-
Opalescence PF
10%, 15% og 20% Carbamide Peroxide til tannlýsingar heima með sérsmíðuðum skinnum.
-
Opalescence Boost 40% HP
40% Hydrogen Peroxide - til tannlýsingar við stólinn á tannlæknastofu undir eftirliti tannlæknis.
-
Opalescence Go
Opalescence go er 6% hydrogen peroxide efni með Potassium Nitrate sem dregur úr viðkvæmni tanna og Fluor sem styrkir glerunginn.
6% hp er ígildi ca. 18% carbamid peroxide efna, eins og t.d. Opalescence PF.
Opalescence go eru tilbúnar skinnur með lýsingarefni. Einnota skeið er sett yfir tanngarðinn, innri skinna leggst yfir tennurnar en ytri skeiðin er fjarlægð. Meðallengd meðferðar er 5-10 skipti.
Hver turn af Opalescence go inniheldur 10 sett (þ.e. skinnur fyrir efri og neðri góm) með melónu eða mintu bragði.
-
Opalescence Endo
35% Hydrogen Peroxide er notað við tannlýsingu á rótfylltum tönnum.
-
Tannkrem Opalescence
Opalescence lýsingartannkrem er mjög gott alhliða tannkrem sem er kjörið til að viðhalda tannlýsingu og hreinsa yfirborðsbletti af tönnunum. Það styrkir glerunginn og kemur í veg fyrir tannskemmdir. Það hefur góða flúoruptöku (inniheldur 1100 ppm) og það má nota daglega.
Tannkremið er ekki grófkorna, það fjarlægir yfirborðsbletti af glerungi með einstrakri blöndu kísilsteinefna án þess að rispa hann.
Opalescence tannkremið inniheldur blöndu af þremur mintu tegundum sem gefur því einstaklega ferskt og gott bragð.
Sensitive inniheldur 5% meira af potassium nitrate en Original, það dregur úr viðkvæmni.
UP4860-EU - Opalescence Original 133gr.
UP0402-EU - Opalescence Original 28gr.
UP3470-EU - Opalescence Sensitive 133gr.
UP3472-EU - Opalescence Sensitive 28gr.
-
UltraEZ
Desensitizing Gel fyrir viðkvæmar tennur vegna tannlýsingar eða annara þátta.
Fæst í sprautum sem hægt er að setja í fyrirfram gerðar lýsingarskinnur en fæst einnig í tilbúnum skinnum með efninu í.
-
Block Out Resin
Til notkunar við gerð lýsingarskinna.
GERUM GÓÐAR LÝSINGARSKINNUR
-
Skinnuefni og skæri fyrir það
Skinnuefni - UP0226, 0,9mm (0.035") er algengast í lýsingarskinnur.
UP0227, 1,5mm (0.060") er gott í lýsingarskinnur fyrir þá sem gnísta tönnum.
UP0284, 2,0mm (0.080") er notað í skinnur og lýsingarskinnur fyrir þá sem gnísta mikið eða hafa kjálkakvilla, t.d TMJ disorder.
Ultra-Trim skæri eru til að fínklippa kanta og brúnir á lýsingarskinnum
-
Skæri til að grófklippa skinnuefni
UP0604 Skæri til að grófklippa skinnuefni
-
OpalDam
OpalDam er notað til að einangra tannhold frá tönnum við tannlýsingu.
-
Opalustre og OpalCups
Opalustre vinnur á og fjarlægir varanlega, brúna og hvíta yfirborðsbletti, sem eru minna 0.2mm djúpir. Árangur getur náðst í einni meðferð.
Á erfiðari bletti er Opalustre notað með OpalCups Bristle bollum sem hafa hárbrúsk í miðjunni, OpalCups Finishing er notað á viðkvæmari glerung.
Opalustre er 6,6% saltsýra (hydrochloric acid) sem inniheldur silicon carbide agnir.